Upplýsingar

Svör við algengum spurningum

Sendu okkur fyrirspurn

Algengar spurningar

Algengar spurningar
  • Hvað felst í þjónustu Ergonomi?

    Þjónustan er sniðin að þörfum hvers vinnustaðar og getur meðal annars falið í sér fræðslu fyrir starfsfólk, verklega kennslu í líkamsbeitingu, mat á vinnuaðstöðu og stillingu vinnubúnaðar. Einnig getur hún náð til uppröðunar skrifborða og vinnurýma, greiningar á mögulegum álagsþáttum og ráðgjafar um raunhæfar úrbætur.


    Markmiðið er að skapa heilbrigðara vinnuumhverfi og veita starfsfólki þekkingu og verkfæri sem nýtast því í daglegu starfi. Eftirfylgni er veitt þegar þörf er á.

  • Fyrir hvaða vinnustaði hentar þjónustan?

    Þjónustan hentar öllum vinnustöðum sem vilja styðja við heilsu og vellíðan starfsfólks. Hún er alltaf sniðin að starfseminni, verkefnunum og þeim aðstæðum sem starfsfólk vinnur við.


    Það getur meðal annars verið á skrifstofum, í skólum og leikskólum, við ræstingar, akstur og þjónustustörf, á lager eða í framleiðslu. Engir tveir vinnustaðir eru eins og því er nálgunin alltaf aðlöguð að þörfum hvers vinnustaðar.

  • Hvað felst í vinnustaðaúttekt?

    Við vinnustaðaúttekt er vinnuaðstaða og framkvæmd starfsins skoðuð með tilliti til líkamsbeitingar, álags, búnaðar og skipulags. Að úttekt lokinni eru lagðar fram skýrar og raunhæfar tillögur að úrbótum sem taka mið af þörfum starfsfólks og aðstæðum vinnustaðarins.

  • Þarf að vera komið upp vandamál áður en leitað er ráðgjafar?

    Nei — best er að vinna fyrirbyggjandi. Með því að greina áhættuþætti og gera viðeigandi breytingar tímanlega má draga úr óþarfa álagi og líkum á álagstengdum einkennum. Því er ekki nauðsynlegt að bíða eftir að vandamál komi upp áður en leitað er ráðgjafar.


  • Er hægt að fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf fyrir starfsfólk?

    Já. Ef starfsmaður finnur fyrir verkjum, óþægindum eða öðrum álagseinkennum er hægt að fá einstaklingsmiðað mat og ráðgjöf. Vinnuaðstaða, líkamsbeiting og framkvæmd starfsins eru skoðuð og metið hvort breytingar á vinnulagi, stillingum, búnaði eða hjálpartækjum geti dregið úr álagi. Einnig er veitt ráðgjöf um viðeigandi næstu skref eftir þörfum.


  • Þarf alltaf að kaupa nýjan búnað?

    Nei, alls ekki. Oft má ná miklum árangri með því að stilla þann búnað sem þegar er til staðar, breyta uppröðun eða endurskoða vinnuskipulag. Ef þörf er á nýjum búnaði fær vinnustaðurinn ráðgjöf um lausnir sem henta starfsfólkinu, verkefnunum og vinnuumhverfinu.

  • Getur Ergonomi ráðlagt um hjálpartæki/léttitæki og búnað?

    Já. Stundum geta einfaldar breytingar eða réttur búnaður létt verulega á vinnunni. Það getur til dæmis verið vinnuvæn mús eða lyklaborð, hjólaborð, lyftibúnaður, tröppur eða önnur léttitæki sem henta verkefnunum hverju sinni.


    Ráðgjafar Ergonomi eru þjálfaðir í að greina hvar slíkar lausnir geta dregið úr álagi og einfaldað vinnudaginn. Við fylgjumst vel með þróun hjálpartækja og vinnubúnaðar og leggjum áherslu á raunhæfar lausnir sem henta bæði starfsfólkinu, verkefnunum og vinnustaðnum — oft án þess að kalla á umfangsmiklar eða kostnaðarsamar breytingar.

  • Er fræðslan aðlöguð að okkar vinnustað?

    Já. Innihald fræðslunnar er sniðið að starfseminni, vinnuaðstæðum og þeim áskorunum sem starfsfólkið mætir í daglegu starfi. Þannig verður fræðslan hagnýt, viðeigandi og auðveldara að nýta hana strax á vinnustaðnum.

  • Hvernig getur þjónustan stutt við heilsu og vellíðan starfsfólks?

    Með aukinni þekkingu, betri líkamsbeitingu og vinnuumhverfi sem tekur mið af fólkinu má draga úr óþarfa álagi og stuðla að meiri vellíðan í vinnunni. Markmiðið er að starfsfólk hafi verkfæri og aðstæður til að líða vel í vinnunni — og eigi enn orku eftir þegar vinnudeginum lýkur.

  • Hvernig bóka ég þjónustu og hvað kostar hún?

    Verð fer eftir umfangi verkefnisins, fjölda starfsfólks og þeirri þjónustu sem óskað er eftir. Þar sem þarfir vinnustaða eru ólíkar er hvert verkefni metið sérstaklega.


    Hafðu samband og segðu okkur stuttlega frá vinnustaðnum og því sem þú vilt fá aðstoð við. Í kjölfarið förum við saman yfir þarfirnar og þú færð skýra tillögu að þjónustu ásamt tilboði sem er sniðið að verkefninu.