Um
Ergonomi
Ergonomi vinnur með einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að því að skapa vinnuumhverfi sem styður við heilsu, vellíðan og starfsánægju. Með fræðslu, ráðgjöf og raunhæfum úrbótum er hægt að draga úr óþægindum og álagi áður en þau þróast í stærri vandamál.
Markviss heilsuefling skilar sér ekki aðeins til starfsfólksins heldur einnig til fyrirtækisins, í minni fjarveru, aukinni starfsánægju og sterkari vinnustaðamenningu. Ergonomi hjálpar fyrirtækjum að greina tækifæri til úrbóta og finna lausnir sem henta bæði fólkinu og starfseminni.

Elsa Stefánsdóttir
Eigandi Ergonomi
Elsa er menntaður sjúkraþjálfari og sérfræðingur í vinnuvernd með yfir fimm ára reynslu af fræðslu, ráðgjöf og verkefnum á sviði vinnuverndar. Hún leggur áherslu á fyrirbyggjandi og raunhæfar lausnir sem draga úr óþarfa álagi og stuðla að heilbrigðari vinnudegi.
Elsa hefur fjölbreytta reynslu úr klínísku starfi og ráðgjöf á vinnustöðum auk þess að hafa umsjón með kennslu í vinnuvistfræði við Háskóla Íslands. Í starfi sínu skoðar hún samspil fólks, verkefna og vinnuumhverfis og aðstoðar fyrirtæki við að finna úrbætur sem henta bæði starfseminni og starfsfólkinu.
Markmiðið er einfalt: að fólk geti sinnt starfi sínu án þess að vinnan gangi á heilsuna, og fari heim með orku fyrir lífið sem tekur við, að vinnudegi loknum.
Hvað þýðir Ergonomi?
Ergonomi = Vísindin um vinnu
Orðið ergonomi á rætur að rekja til grísku orðanna ergon, sem merkir vinna, og nomos, sem merkir lögmál eða reglur. Í einföldu máli snýst ergonomi um samspil fólks, vinnu og vinnuumhverfis.
Þessi hugsun er kjarninn í Ergonomi. Við skoðum hvernig vinnan, aðstaðan og skipulagið geta betur tekið mið af fólkinu sem sinnir henni, með það að markmiði að draga úr óþarfa álagi, styðja við heilsu og vellíðan og skapa betri vinnudag til lengri tíma.