Meiri hreyfing og hvíld í vinnunni, án þess að raska vinnudeginum
Það þarf ekki að taka löng hlé eða setja vinnudaginn úr skorðum til að hreyfa sig aðeins meira og gefa líkamanum hvíld. Stutt örhlé, breyting á vinnustöðu og einföld hreyfing geta auðveldlega orðið hluti af deginum, án þess að draga úr afköstum eða taka tíma frá verkefnunum.
Hér eru fimm einfaldar leiðir til þess:
1. Notaðu náttúruleg skil í vinnunni
Stattu upp þegar símtali lýkur, teygðu aðeins úr þér áður en þú byrjar á næsta verkefni eða hreyfðu axlirnar eftir langan fund. Þannig verða örhléin hluti af vinnuflæðinu en ekki enn eitt verkefnið á listanum.
2. Skiptu reglulega um stöðu
Það er engin ein vinnustaða sem er góð allan daginn. Færðu þig til í stólnum, stattu upp annað slagið eða færðu þig á milli vinnusvæða ef þú hefur kost á því. Oft er mikilvægara að skipta um stöðu en að reyna að sitja „fullkomlega rétt“.
3. Taktu nokkur skref þegar tækifæri gefst
Gakktu á meðan þú talar í símann, sæktu þér vatn eða farðu til samstarfsfélaga í stað þess að senda skilaboð. Litlu ferðirnar yfir daginn telja og brjóta upp langa kyrrsetu.
4. Gefðu augunum smá hvíld
Ef þú vinnur mikið við skjá er gott að líta reglulega upp og beina sjónum að einhverju í fjarska. Þetta þarf ekki að taka nema nokkrar sekúndur og þú getur til dæmis gert það á meðan þú hugsar, bíður eftir að skjal opnist eða lýkur verkefni.
5. Ekki bíða þar til líkaminn kvartar
Það er auðvelt að gleyma sér í vinnunni og standa ekki upp fyrr en stirðleiki eða þreyta er farin að gera vart við sig. Prófaðu að hreyfa þig aðeins áður en óþægindin koma. Nokkrar sekúndur reglulega geta verið betri en eitt langt hlé þegar líkaminn er orðinn þreyttur.
Það þarf ekki að breyta öllu í einu. Veldu eitt atriði sem passar vel inn í þinn vinnudag og byrjaðu þar. Markmiðið er ekki að taka tíma frá vinnunni heldur að skapa meiri fjölbreytni yfir daginn og gefa líkama og huga reglulega stutta hvíld.
Litlar breytingar, endurteknar yfir daginn, geta haft meiri áhrif en maður heldur. Besta örhléið er nefnilega oft það sem fellur svo vel inn í vinnudaginn að þú tekur varla eftir því.
Ergonomi miðlar hagnýtri fræðslu og ráðgjöf sem hjálpar einstaklingum og vinnustöðum að styðja við heilsu, vellíðan og starfsánægju.
Meiri fróðleikur
